26.05.2007 10:15:02 / Gretar

Frábærar fréttir frá kína !!

Ég og daði vorum rétt í þessu að tala við Ingu og begga í gegnum msn, og misstu þau óvart útursér að þau hefðu alveg misst sig á mörkuðunum síðustu daga.

Við spurðu hví skyldi það nú vera ??

Og eins og grunur leiddi graðann þá er inga búinn að vera hlaða pappakassa fulla af barnaskóm og fötum til að eiga fyrir litla engilinn sem hún á von nuna eftir rúma 6 mánuði og vill ég óska ingu og begga innilega til hamingju með þessar frábæru fréttir.

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 02:54:38 / Beggi Boli

Ekkert nema ferðast!!!!!!!

Jæja langt síðan maður hefur bloggað inn á þessa blessuðu síðu, en núna á ég allaveganna nokkrar ferðasögur í pokahorninu. Þannig er mál með vexti að ég er semsagt ný kominn heim frá Filipseyjum nánar tiltekið Boraqay og jísús minn hvað þetta var næs staður, við erum að tala um 40 stiga hita, hvítar strendur,kaldann bjór og heitar stelpur...:) gerist ekki betra held ég og hvet ég alla sem lesa þetta blogg að skella sér ti Filipínó það er hægt að velja um helling af stöðumm til þess að heimsækja. Við gistum t.d. öll á hóteli sem heitir Turtle inn og var bara mjög flott og sérstaklega hress eigandinn sem var Bandaríkjamaður og frekar í blautari kanntinum ef þið skiljið hvað ég meina hehe, en samt helvíti hress kall engu að síður, og vildi allt fyrir mann gera og þá sérstaklega djamma með manni:) En eins og ég sagði áðann þá hvet ég alla að fara til Boraqay...allur hópurinn áður en haldið er til baka

Allur hópurinn

sólsetrið

Mynd númer 114

Sólsetur á Boraqay það gerðist svo hratt að það var eins og sólinn dytti bara niður í hafið

þessi litli gutti var þarna að selja ís

litli gaurinn við hliðina á helga var að selja ís

Já í dag er mánudagur og ég kom semsagt heim í gær nótt frá Xian en við fórum þangað á föstudags kveldi kl 21:00 með lest sem tók ekki nema 14 tíma en sem betur fer fékk maður nú koju í lestinni, og var þetta bara hinn þægilegasti ferðamáti. Okkur var semsagt boðið til xian af Glitni að skoða hitaveitu, þá einu í kína að ég held. En þessi ferð var mjög flott í alla staði,kannski nema maturinn hann var ekkert altof spes. Hótelið sem við gistum á var 4 stjörnu og hét e-h bla bla Spa og leit bara nokkuð vel út, og var með þessu helvíti flottu spai maður. Eftir að hafa skoðað þessa hitaveitu var haldið heim á hótel og ferðinni heitið í spa nudd og e-h gott. Þetta byrjaði þannig að þegar maður labbaði inn voru teknir af manni skórnir og maður færður í nýja inniskó, svo var manni bent á að fara inn í kallaklefann og allt sem maður fór þá voru allaveganna tveir starfsmenn sem fylgdu manni. Svo kom maður inn í kallaklefann og fékk sundskýlu og var svo sagt að fara að skipta og það átti sko að hjálpa mér að klæða mig í skýluna en ég afþakkaði það nú bara. Svo var manni sagt að fara í sturtu og innan af sturtuklefunum var svona skrúbb nudd meðferð sem kínverjar kalla hvítingjar meðferð, ég lít inn og sé að Bjössi liggur þarna á bekk allsnakinn að láta kínverskann kall nudda á sér bakið og ég spyr hvernig þetta sé og  hann segir að þatta sé svona líka helvíti gott þannig að ég ákveð að skella mér, og er rifinn úr skýlunni og hent á bekk og helt yfir mig volgu vatni so sínir kallinn mér einhverskonar þvottapoka og er eitthvað að babbla á kínversku þá fattaði ég að þetta var þessi hvítingjar meðferð þannig að ég segi bara pent nneeiii ekki núna en kallinn skilur ekki neitt og þá heirist í Bjössa segðu bara já... þannig að ég slæ til:( Og kallinn byrjar að skrúbba og þvottapokinn var bara sandpappír og þetta var bara hálf vont á tímabili en það var nú ekkert miðað við að kallhelvítið reif bara upp á manni punginn og var ekkert feiminn við að þrífa undir honum og í rassaskorunni og alles jakk bara þetta var frekar subbulegt en það létu sig þó næstum allir strákarnir í ferðinni hafa þetta.

svo var farið í sund og eithvað drukkinn smá bjór og svo kom nuddið maður sjæsa.... Nuddið fór þannig fram að við vorum látinn þrífa okkur og fara svo í kúng fú galla, svona eins konar náttföt og labba upp á aðra hæð, .ar var fullt af herbergjum bara með rúmum og alles og okkur var sagt að fara inn á herbergin en við vorum bara fyrir utann e-h að spjalla og svo koma fyrir hornið nuddkonurnar 1 stykki á mann og klæddar í skólabúninga!!!!!!!!!!! þið vitið.. stutt köflótt pils, hvíta skyrtu með bindi í stíl við pilsið:haha: og allir strákarnir brostu sínu breiðasta hehe very næs en jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í dag en þeir sem vilja heyra meiri ferðasögur geta pantað tíma í 699-ég-vil-heyra-ferðasögur.

 

þangað til næst lömbinn mín.............................:haha: 

P.S ákbað að henda inn nokkrum myndum svona til gamans.....enjoy:haha:

IMG 0008

Alltaf stutt í grínið hjá þessum hehe

IMG 0038

KISA að mjálma í dýragarðinum

Mynd númer 120

Mynd númer 122

Mynd númer 124

Ammalið mitt sem var mjög gaman en hún Inga mín skipulagði svona surrprise veisu fyrir mig á besta veitingarstaðnum á Boraqay

Mynd númer 137

hehe flott tattú

 


» 7 hafa sagt sína skoðun